Jesaja 45:1–25

  • Kýrus smurður til að vinna Babýlon (1–8)

  • Leirinn á ekki að deila við leirkerasmiðinn (9–13)

  • Aðrar þjóðir viðurkenna Ísrael (14–17)

  • Sköpun Guðs og opinberanir sýna að hann er áreiðanlegur (18–25)

    • Jörðin sköpuð til að vera byggð (18)

45  Þetta segi ég, Jehóva, við minn smurða, við Kýrus,sem ég hef tekið í hægri höndina átil að leggja þjóðir undir hann,til að afvopna* konungaog opna fyrir honum dyrnarsvo að borgarhliðin verði ekki lokuð:   „Ég geng á undan þérog jafna hæðirnar. Ég mölva koparhurðirnarog slagbrandana úr járni hegg ég af.   Ég gef þér fjársjóðina sem eru í myrkrinuog auðæfin sem eru falin á leyndum stöðumsvo að þú skiljir að ég er Jehóva,Guð Ísraels, sem kalla þig með nafni.   Vegna Jakobs þjóns míns og Ísraels, míns útvalda,kalla ég þig með nafni. Ég gef þér heiðursnafn þó að þú þekktir mig ekki.   Ég er Jehóva og enginn annar er til. Enginn Guð er til nema ég. Ég styrki þig* þó að þú þekktir mig ekki   svo að menn vitifrá austri til vesturs*að enginn er til nema ég. Ég er Jehóva og enginn annar er til.   Ég mynda ljós og skapa myrkur,ég veiti frið og veld ógæfu. Ég, Jehóva, geri allt þetta.   Þið himnar, látið rigna að ofan,látið réttlæti streyma úr skýjunum. Jörðin opnist svo að frelsunin gróiog láti hún réttlætið spretta. Ég, Jehóva, hef komið því til leiðar.“   Illa fer fyrir þeim sem berst gegn skapara sínum*því að hann er bara leirbrotinnan um hin leirbrotin sem liggja á jörðinni. Á leirinn að segja við leirkerasmiðinn:* „Hvað ertu að gera?“ Eða á verk hans að segja: „Hann er ekki með hendur“?* 10  Illa fer fyrir þeim sem segir við föður: „Hvers konar afkvæmi munt þú eignast?“ og við konu: „Hvað ert þú að fæða?“ 11  Þetta segir Jehóva, Hinn heilagi Ísraels, sá sem myndaði hann: „Véfengirðu orð mín um það sem koma skalog skipar mér fyrir varðandi syni mína og verk handa minna? 12  Ég gerði jörðina og skapaði manninn á henni. Ég þandi út himininn með eigin höndumog skipa öllum her hans fyrir.“ 13  „Í réttlæti mínu hef ég látið mann ganga framog ég geri alla vegi hans beina. Hann mun reisa borg mínaog láta útlaga mína lausa án endurgjalds eða mútu,“ segir Jehóva hersveitanna. 14  Jehóva segir: „Gróði* Egyptalands og vörur* Eþíópíu og hinna hávöxnu Sabeakoma til þín og verða þín eign. Þeir munu ganga fjötraðir á eftir þér,þeir koma og krjúpa fyrir þér. Þeir segja við þig með lotningu: ‚Guð er sannarlega með þérog enginn annar er til, enginn annar er Guð.‘“ 15  Þú ert Guð sem dylst,Guð Ísraels, þú sem frelsar. 16  Menn verða sér til skammar og verða auðmýktir. Skurðgoðasmiðirnir ganga allir burt með smán. 17  En Jehóva frelsar Ísrael og sú frelsun varir að eilífu. Aldrei að eilífu þurfið þið að skammast ykkar né verða smánaðir. 18  Þetta segir Jehóva,skapari himins, hinn sanni Guð,hann sem mótaði jörðina og myndaði hana svo að hún stæði stöðug,sem skapaði hana ekki til einskis* heldur til að hún væri byggð: „Ég er Jehóva og enginn annar er til. 19  Ég talaði ekki á leyndum stað, í landi myrkurs. Ég sagði ekki við afkomendur Jakobs: ‚Leitið mín til einskis.‘ Ég er Jehóva og segi það sem er satt* og boða það sem er rétt. 20  Safnist saman og komið. Gangið nær, þið sem hafið flúið frá þjóðunum. Þeir vita ekkert, þeir sem ganga um með skurðgoðog biðja til guðs sem getur ekki bjargað þeim. 21  Segið frá og flytjið mál ykkar. Ráðfærið ykkur hver við annan. Hver sagði þetta fyrir forðum dagaog boðaði það endur fyrir löngu? Var það ekki ég, Jehóva? Enginn Guð er til nema ég,réttlátur Guð og frelsari, enginn er til nema ég. 22  Snúið ykkur til mín og bjargist, allir jarðarbúar,því að ég er Guð og enginn annar. 23  Ég hef svarið við sjálfan mig,orðið sem kemur af munni mínum er sannleikurog það snýr ekki aftur: Hvert hné mun beygja sig fyrir mérog hver tunga sverja mér hollustueið 24  og segja: ‚Hjá Jehóva er ósvikið réttlæti og styrkur. Allir sem rísa gegn honum koma fram fyrir hann með skömm. 25  Með hjálp Jehóva verður ljóst að allir afkomendur Ísraels hafa rétt fyrir sérog þeir segja frá honum með stolti.‘“

Neðanmáls

Orðrétt „losa beltið af mjöðmum“.
Orðrétt „gyrði þig belti“.
Orðrétt „frá sólarupprás til sólseturs“.
Eða „deilir við skapara sinn“.
Eða „þann sem mótaði hann“.
Eða hugsanl. „Eða á leirinn að segja: ‚Verk þitt er ekki með nein handföng‘?“
Eða hugsanl. „Verkamenn“.
Eða hugsanl. „kaupmenn“.
Eða hugsanl. „til að hún væri auð“.
Eða „réttlátt“.