Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Úr ýmsum áttum

Úr ýmsum áttum

Heimurinn

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur komist að þeirri niðurstöðu að útblástur frá díselvélum „auki hættuna á lungnakrabbameini“ og hugsanlega einnig krabbameini í þvagblöðru.

Suðurskautslandið

Fundist hafa steingerð frjókorn og gró í setlögum á sjávarbotni sem leiða í ljós að hitabeltisskógar og pálmatré uxu á Suðurskautslandinu endur fyrir löngu. Vetur voru mildir og „að mestu leyti frostlausir“ á „gróðurhúsaskeiði eósen-tímans“. Ekki var verulegur munur á hitastigi á pólunum og við miðbaug.

Írland

Könnun meðal kaþólskra á Írlandi leiðir í ljós að 87 prósent eru þeirrar skoðunar að leyfa eigi prestum að giftast og 77 prósent telja að konur eigi að fá að gegna prestsembætti. Samtök kaþólskra presta á Írlandi greindu frá þessu á síðasta ári.

Suðaustur-Asía og Afríka sunnan Sahara

Efnagreining á malaríulyfjum hefur leitt í ljós að sums staðar í heiminum uppfylla lyf ekki gæðakröfur eða eru fölsuð. Meðferð er þar af leiðindi ófullnægjandi eða gagnslaus. Í Suðaustur-Asíu voru 36 prósent lyfjasýna, sem rannsökuð voru, dæmd fölsuð og í löndunum suður af Sahara reyndist hlutfallið 20 prósent.

El Salvador

Um miðjan apríl 2012 fögnuðu stjórnvöld í El Salvador fyrsta morðlausa deginum í næstum þrjú ár. Ofbeldi tengt fíkniefnum er útbreitt í landinu og árið 2011 var tíðni manndrápa 69 á hverja 100.000 íbúa. Þetta er ein hæsta tíðni sem þekkist í heiminum.