Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

SÖNGUR 45

Hugsun hjarta míns

Hugsun hjarta míns

(Sálmur 19:15)

  1. 1. Ég bið að hugsun hjarta míns

    sé heilnæm og þér þóknanleg.

    Hún, Guð minn, stöðugt gleðji þig

    er geng ég staðfastur þinn veg.

    Er áhyggjur mér íþyngja,

    mér órótt er um miðja nótt,

    ég hugsa megi þá um þig

    og þá mér verður aftur rótt.

  2. 2. Allt sem er göfugt, satt og hreint

    og sérhvern dyggðarinnar sið,

    já, allt sem gott er afspurnar,

    ég hugsi um og öðlist frið.

    Hver hugsun þín svo einstök er,

    þeim enginn festir tölu á.

    Ég stöðugt orð þín íhuga,

    með allan hugann er þér hjá.