Hoppa beint í efnið

Hoppa í efnisyfirlit

Paradís á næsta leiti

Paradís á næsta leiti

Sækja:

  1. 1. Söngur heiðlóunnar hljómar,

    lækur hjalar bak við hól.

    Angan blóma úti’ í móa, 

    óðal álfta, öruggt tjarnarból.

    Þú átt von á gestum,

    kvöldið verður yndislegt.

    Paradís sem undravert

    var rétt á næsta leiti.

  2. 2. Inni’ í fjörðum og á fjöllum

    standa fögur heimkynni.

    Úti vinahópar heyja,

    taka hraustlega til hendinni.

    Söngur, útivera,

    tími uppskerunnar er.

    Paradísin dásamleg

    var rétt á næsta leiti.

    (MILLIKAFLI)

    Í kærleika, án veikleika

    við kynnumst nánar Jehóva.

    Þá gróa sár og hverfa tár,

    við hlökkum til að upplifa.

  3. 3. Úti drýpur morgundöggin

    þegar dagur bjartur hefst.

    Glaðleg heyrast hlátrasköllin,

    þakklát Guði þegar sólin sest.

    Við elskum föður okkar

    fyrir örlæti og ást.

    Framtíð björt sem eigi brást

    mín beið á næsta leiti.

    (MILLIKAFLI)

    Hve ótrúlegt en yndislegt

    að fá að sjá þitt bros á ný.

    Sár söknuður er læknaður

    og broddur dauðans fyrir bí.

  4. 4. Rétt handan við hornið

    bíður heimur langþráður.

    Allt hið fyrra böl er farið,

    vandi fólksins er þá afmáður.

    Öll hin góðu heit frá Guði

    veita gleði, von og frið. 

    Brátt er liðin þessi bið,

    paradís á næsta leiti.