Hoppa beint í efnið

Hefur Biblíunni verið breytt?

Hefur Biblíunni verið breytt?

 Nei, samanburður gamalla handrita sýnir að Biblían hefur í grundvallaratriðum haldist óbreytt þótt hún hafi verið afrituð á forgengilegt efni í árþúsundir.

Þýðir það að villur hafi aldrei slæðst inn við afritun?

 Forn handrit hafa fundist í þúsunda tali. Í sumum þeirra eru frávik á nokkrum stöðum, sem bendir til þess að mistök hafi verið gerð við afritun. Þetta eru oftast smávægileg frávik sem breyta ekki merkingu textans. En á nokkrum stöðum hefur komið í ljós talsverður munur. Í sumum tilvikum lítur út fyrir að það hafi verið reynt að breyta boðskap Biblíunnar fyrir löngu. Lítum á tvö dæmi:

  1.   Í 1. Jóhannesarbréfi 5:7 má finna eftirfarandi orð í nokkrum eldri biblíuþýðingum: „Í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt.“ Hins vegar staðfesta áreiðanleg handrit að þessi orð var ekki að finna í frumtextanum. Þeim var bætt við seinna. a Þess vegna er þessum orðum sleppt í áreiðanlegum nútíma biblíuþýðingum.

  2.   Nafn Guðs má finna mörg þúsund sinnum í fornum biblíuhandritum. Samt hafa titlar eins og „Drottinn“ eða „Guð“ verið settir í staðinn fyrir nafnið í mörgum biblíuþýðingum.

Hvernig getum við verið viss um að fleiri villur eigi ekki eftir að koma í ljós?

 Það mörg handrit hafa fundist að aldrei hefur verið eins auðvelt að koma auga á villur. b Hvað hefur samanburður þessara rita leitt í ljós varðandi nákvæmni Biblíunnar nú á dögum?

  •   „Það er óhætt að segja að engu öðru verki úr fornöld hafi verið skilað áfram af slíkri nákvæmni,“ fullyrti fræðimaðurinn William H. Green í athugasemdum sínum um texta hebreska hluta Biblíunnar (Gamla testamentisins).

  •   Fræðimaðurinn Frederick F. Bruce segir um gríska hluta Biblíunnar (Nýja testamentið): „Það eru margfalt sterkari rök fyrir því að rit Nýja testamentisins séu áreiðanleg en mörg af ritum klassískra höfunda, en engum dettur þó í hug að véfengja þau.“

  •   Sir Frederic Kenyon, þekktur biblíuhandritafræðingur sagði: „Maður getur tekið sér alla Biblíuna í hönd og sagt óhikað og óttalaust að hún hafi að geyma hið sanna orð Guðs sem borist hefur frá kynslóð til kynslóðar í aldanna rás án þess að tapa nokkru sem máli skiptir.“

Hvaða fleiri rök höfum við sem fullvissa okkur um að Biblían hafi borist okkur óbreytt?

a Þessi orð eru ekki í Codex Sinaiticus, Codex Alexandrinus, Vatican handriti 1209, upprunalegu latnesku Vúlgata-þýðingunni, Philoxenian-Harclean, sýrlensu útgáfunni eða Peshitta á sýrlensku.

b Tökum dæmi. Fundist hafa rúmlega 5.000 handrit á grísku sem tilheyra gríska hluta Biblíunnar (Nýja testamentinu).

c Í Biblíunni er ekki gefið í skyn að fulltrúar Guðs á jörð hafi verið óskeikulir heldur er viðurkennt af raunsæi að „enginn maður er til sem ekki syndgar“. – 1. Konungabók 8:46.

d Í Biblíunni segir að þótt Guð hafi ekki lesið biblíuriturunum fyrir innihald Biblíunnar orð fyrir orð, hafi hann stýrt hugsun þeirra. – 2. Tímóteusarbréf 3:16, 17; 2. Pétursbréf 1:21.